sunnudagur, janúar 21, 2007

Þriðji kafli endurhvarfs Frökenar Ra

Byrjum hérna á einni goðsögn níunda áratugarins, Fröken Lauper. Cindy er alltaf með þetta, byrjaði að endurnýta löngu áður en það komst í tísku:



Þetta ágæta lag Gazebo var lengi í uppáhaldi frökenarinnar og einnig hennar eldri systur. Þetta er dæmigert nostalgíulag sem vekur upp löngu gleymdar minningar:



Þá er það þetta hérna lag, sem að vísu er frá 1991, en það varð samt að fá að fljóta með þar sem lagið sem átti að koma hér er ófinnanlegt. Frökenin verður að viðurkenna vanmátt sinn og viðurkenna að lagið snertir alltaf einhverjar taugar. Þegar hún heyrði það fyrst varð hún algjörlega dáleidd og líkt og fíkill varð hún að heyra það aftur og aftur og aftur. Nú gerir minningin um þessa fíkn fröken Ra ódómbæra á gæði lagsins.
Hazard:





Þar til næst,

Ra

fimmtudagur, janúar 11, 2007

Þá er það seinni hluti upprifjunar frökenarinnar.

Eftirfarandi myndband þótti henni til mikillar príði, var enda sérlega hrifin af dansandi geðsjúklingum í spandex göllum, eins og annað samtímafólk hennar, og var auðvitað ekkert myndband samt án slíkra danshópa.



Svo var það hún Belinda Carlisle, mikið átrúnaðargoð hjá litlu dömunni. Úr mörgum athyglisverðum myndböndum er að velja, en þetta varð ftyrir valinu þar sem það sameinar einnig annað sem frökenin hefur sérlega gaman að, þ.e. tímabils-myndir. Þó svo að þetta sé vissulega einungis hugmyndasnautt myndband þá eru búningarnir samt sem áður fallegir.



Þá var það þetta ágæta lag sem heillaði frk.Ra í, tja, kannski ekki mörg ár en allavega nokkuð langan tíma fyrir svona unga sál



Meira næst.


Ra

fimmtudagur, janúar 04, 2007

Níundi áratugurinn með augum Frk.Ra.

Nú á næstunni hyggst frk.Ra rifja upp gamlar stundir og gefa lesendum þessa steindauða bloggs smá innsýn inn í skyndibrjálæðisleg æskuár, og þar með hugarheim, skrifanda þess. Þetta er ekki til þess gert að heilaþvo eða sturla ykkur, ágætu lesendur, heldur er þetta einungis til gamans gert og er ætlunin að gleðja þá dyggu lesendur sem eflaust leynast þarna einhvursstaðar úti og verma þannig ykkar innantómu, frosnu hjörtu.

Þetta var eitt af mörgum uppáhöldum frökenarinnar um stund. Þá þótti henni ungfrúin sem þenur þarna raddböndin ægilega smekklega klædd, en hárkolla hennar minnir þó nokkuð á hár móður Frk.Ra eins og það var stíliserað á þessum umrótatíma (fyrir utan litinn að vísu) og ekki skemmdi það fyrir aðdáuninni.



Þá má einnig bæta þessum kauða við, en frökenin upplifði fyrstu ástina þegar hún sá myndbandið á sínum tíma, en það var einmitt sýnt í hennar uppáhaldaþætti sem kallaðist því góða nafni Skonrokk.




Látum þetta duga í bili.






Ra

föstudagur, desember 29, 2006

OMG! Kallinn minn var svo heima eftir allt þar sem samningar náðust ekki eða eitthvað :o( Enn þú veist, vá hvað það var gaman að hafa hann heima!! :oD OK, sko næst á dagskránni hjá okkur er brúðkaup hjá Helga Skúla og Berglindi á gamlársdag og svo bara strax eftir áramót afmæli hjá aðalgellunni ;o) svo hjá Sollu, mömmu, Söru og Guðjóni, og það er bara janúar - VÁ!!!!! :o) Geðveikt! OMG hvað þetta verður geggjaður janúar, nú er best að fara að drífa síg í ljós ;o) láta laga neglurnar :o) og kannski kaupa Superlift4000 brjóstahaldara :o/ hann er sko megaflottur!! :o) OMG hvað þetta verður ógislega truflað :o) Sjáumst á Oliver!!!!! OMG Ég verð svo mikil beibsa!! LOL


Ra

laugardagur, desember 16, 2006

Svo er víst að frökenin mun líklega aldrei upplifa slík hörmunga jól og fólkið á Súmötru gerði 2004 eða sveltandi hátíð eins og fólkið í Eþíópíu þarf að þola ár eftir ár, en engu að síður verða jólin í ár henni feikilega erfið. Þannig er mál með vexti að rétt í þessu komust þau hjónaleysin að því að ektamaðurinn er að fara af landi brott næsta þriðjudag og kemur ekki aftur fyrr en á næstkomandi ári. Já, frk.Ra verður grasekkja yfir jól, áramót og líklega afmælið sitt líka. Á hinn bóginn verður að líta á allar hliðar. Launin fyrir þessa vinnu eru gríðarleg og munu breyta öllum fjárhag þeirra verðandi hjóna það sem eftir lifir vetrar. Sömuleiðis er þetta einstakt tækifæri fyrir hennar heittelskaða til að sjá lönd á borð við Bólivíu, Argentínu og fleiri góð, og mundi ekki nokkur góð ektakona með fullu viti vilja svifta hann því. Ekki væri verra ef að hún gæti verið í ferðatöskunni en af því verður víst ekki. Þannig að ef þetta er summað upp þá mun maðurinn ferðast um heiminn og afla fjár fyrir fjölskylduna á meðan konan sér um heimilið, heldur jól og áramót og afmæli og bíður eftir manni sínum. Mjög gamaldags og kynjaskipt, alveg eins og frökenin vill hafa það..... eða hvað?



Ra

sunnudagur, desember 10, 2006

Fljúgandi trampólín skemmdu tvo bíla í nótt!
Fréttir herma að trampólín séu nú álitin jafn skæð og Skólabörn ekki síst eftir að þau lærðu að fljúga, en yfirvöld eru að velta þeim möguleika fyrir sér að setja upp skilti um borgina til viðvörunar líkt og gert er með skólabörnin. Einnig hefur verið rætt að lögregluþjónar fari nú að bera vopn í kjölfar hættuástandsins og hefur það verið sett í þingnefnd hvort að þeim muni vera úthlutuð skotvopn, rafbyssur eða hvort tveggja ef úr verður. Íbúum er bent á að ferðast helst ekki um eftir myrkur og þá ekki ein eða einir á ferð. Trampólínin og Skólabörnin berjast nú um yfiráðasvæði víða í borginni, en Skólabörnin sem eru eldri fylking hafa haft meira fylgi fram til þessa, eru sögð óttast um völd sín. Í sumum hverfum hefur Trampólínunum reynst erfitt að hasla sér völl án átaka en fylgi þeirra eykst þó jafnt og þétt og sjást nú sífelt fleiri með merki klíkunnar húðflúrað á handleggi sína og bak. Mikil ólga er milli þessara tveggja hópa og óttast er að brátt muni sjóða uppúr en það gæti leitt til borgarstyrjaldar. Enn og aftur er minnt á að halda sig innandyra og ferðast aðeins um í hópum og þá einungis þegar nauðsyn krefur þar til lögreglan hefur náð tökum á ástandinu.


Fréttastofa Ra.

miðvikudagur, desember 06, 2006

Nú ætlar frk.Ra að taka sig til og drita niður einni færslu, þó ekki sé nema einvörðungu til að tryggja það að hinsti mánuður þessa ágæta árs fái færslu sér til heiðurs hér á háttvirtri skrafsíðu frökenarinnar. Nú ætti hún, eins og svo margir samlandar hennar, að vera að fylla höfuð sitt af misgagnlegri vitneskju fyrir próf en hefur í stað þess tekið þá sjálfstæðu og sumir myndu vissulega segja óvitrænu ákvörðun, þótt deila megi um það á öðrum vettvangi, að rita nokkur orð hér á veraldarvefnum.

Orðin verða ekki mörg og samhengi þeirra verður hugsanlega af skornum skammti en orð skulu þau vera. Orð um ást, orð um hamingju, orð um svik, orð um dauðann. Nei, ekki verða orð frökenarinnar um neitt þessara viðfangsefna í dag. Orð dagsins munu vera um kaffi. Nánar tiltekið um kaffi með flóaðri mjólk og dreytli af súkkulaðisýrópi. Þessi forláta drykkur hefur gripið frökenina heljartaki og fyllist hún mikilli þrá við tilhugsunina, enda veitir hann mikla unaðstilfinningu þegar hún innbyrðir hann. Seyðandi mjúk froðan leikur um varir hennar um leið og munnurinn fyllist heitum vökva sem daðrar við bragðlaukana áður en hann rennur seytlandi niður kok hennar. Tungan hefur ekki fengið fylli sína og sleikir eftirsitjandi froðu af vörunum sem fyllast um leið öfund af missi sínum. Þegar fróun fyrsta sopans líður hjá er ekki annað í stöðunni en að hefja leikinn að nýju og fá sér annan sopa og annan, allt þar til bollinn er tæmdur frygðarvökva sínum. Að lokum situr frökenin eftir örmagna eftir ólgurnar sem geysuðu, rjóð af hita á barmi og kinnum og lygnir aftur augunum til að varðveita minningu síðasta sopans úr bollanum.


Kaffi er sérdeilis prýðilegur drykkur.







Ra